

Barcelona er sagt leiða kapphlaupið um að fá Bernardo Silva frá Manchester City í sumar.
Silva, sem er fyrirliði City, er væntanlega á förum þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið, eftir níu ár hjá félaginu. Portúgalinn hefur lengi gefið í skyn að hann vilji færa sig nær heimalandi sínu og gæti því litið til Spánar sem næsta skrefs.
Þrátt fyrir að hann hafi áhuga á að enda ferilinn hjá Benfica telur hann sig enn geta spilað á hæsta stigi í Evrópu.
Þjálfari Barcelona, Hansi Flick, er sagður vilja bæta reynslu inn í ungan hóp sinn og sér Silva sem lykilmann á miðjunni.
Þá gæti hann sameinast aftur João Cancelo, sem er nú á láni hjá Barcelona.