fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Ekki bara kaup sem er á döfinni hjá United – Þurfa að taka ákvörðun um þrjá lykilmenn

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 31. mars 2026 16:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United undirbýr sig fyrir annasaman sumarglugga þar sem áherslan verður fyrst og fremst á leikmannakaup. Félagið stefnir á endurkomu í Meistaradeildina eftir góðan viðsnúning síðan Michael Carrick tók við liðinu í janúar.

Miðjan verður forgangsmál, enda er Casemiro á leið út og óvissa um framtíð Manuel Ugarte. United gæti því fengið að minnsta kosti tvo nýja miðjumenn, auk þess sem vinstri kantmaður er á óskalistanum.

Á sama tíma þarf að leysa úr samningsmálum lykilmanna. Bruno Fernandes, fyrirliði liðsins, gæti framlengt samning sinn en mun taka ákvörðun eftir heimsmeistaramótið. Kobbie Mainoo er hins vegar sagður nálægt því að skrifa undir nýjan samning.

Óvissa ríkir um framtíð Luke Shaw, sem hefur glímt við meiðsli en spilað vel á tímabilinu, og Lisandro Martínez sem hefur einnig verið mikið frá vegna meiðsla.

Stjórnendur félagsins standa því frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þar sem meta þarf bæði frammistöðu og líkamlegt ástand leikmanna áður en langtímasamningar eru boðnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal sagt vilja kaupa slatta í sumar – Svona gæti byrjunarliðið litið út

Arsenal sagt vilja kaupa slatta í sumar – Svona gæti byrjunarliðið litið út
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tíðindin af Guardiola opna dyrnar fyrir Real Madrid

Tíðindin af Guardiola opna dyrnar fyrir Real Madrid
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hógvær fyrir kvöldið þrátt fyrir að vera sá sigursælasti

Hógvær fyrir kvöldið þrátt fyrir að vera sá sigursælasti
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins skefur ekki af því í pistli sínum – „Virðist vera að setja met í óvinsældum“

Blaðamaður Morgunblaðsins skefur ekki af því í pistli sínum – „Virðist vera að setja met í óvinsældum“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gæti misst starf sitt og verið settur í bann eftir njósnahneykslið

Gæti misst starf sitt og verið settur í bann eftir njósnahneykslið