
Íslandsmeistarar Víkings eru meistarar meistaranna eftir sigur á bikarmeisturum Vestra á heimavelli í dag.
Sigurinn var sannfærandi gegn Lengjudeildarliðinu. Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk fyrir Víking og Valdimar Þór Ingimundarson og Óskar Borgþórsson komust einnig á blað. Lokatölur 4-0.
Tólf dagar eru í að Besta deildin hefjist og fer fyrsti leikur einmitt fram í Víkinni, þar sem heimamenn taka á móti Breiðabliki í stórleik.