

Bakvörðurinn Andy Robertson segir að samstarf hans við Mohamed Salah hafi verið lykilatriði í velgengni þeirra hjá Liverpool undir stjórn Jürgen Klopp.
Þeir Robertson og Salah komu báðir til félagsins sumarið 2017 og urðu fljótt mikilvægir hlekkir í svokölluðum „þungarokks“-fótbolta Klopp. Með mikilli orku og hraða féllu þeir fullkomlega að leikstíl liðsins og hjálpuðu Liverpool að vinna alla helstu titla á félagsstigi á undanförnum árum.
Nú, níu árum síðar, gæti sumarið markað endalok þeirra beggja á Anfield. Robertson segir að Salah hafi haft mikil áhrif á sig frá fyrsta degi.
„Við Mo urðum strax nánir, við skrifuðum báðir undir á sama tíma. Hann hjálpaði mér mikið þegar ég kom fyrst,“ sagði Skotinn.
Hann viðurkennir að hafa efast um sjálfan sig eftir að hafa komið frá Hull City, en að stuðningur frá leikmönnum á borð við James Milner, Jordan Henderson og Adam Lallana hafi skipt sköpum.
Robertson hrósaði einnig Salah fyrir fagmennsku sína. „Hann helgar hverja einustu mínútu fótboltanum. Hann er í ótrúlegu formi og meiðist sjaldan. Þetta hugarfar er það sem þarf til að ná á hæsta stig.“