

Pedro Neto, leikmaður Chelsea, lenti í undarlegu atviki með boltastrák undir lok leiks liðsins gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu.
Atvikið átti sér stað þegar Chelsea var 4-2 undir í uppbótartíma á Parc des Princes. Boltinn fór útaf og Neto reyndi að fá nýjan bolta frá boltastrák við hliðarlínuna til að flýta leiknum. Boltastrákurinn virtist hins vegar hika og afhenti boltann ekki strax, heldur gaf til kynna að hann ætlaði jafnvel að kasta honum frá.
Það vakti pirring hjá Neto sem ýtti boltastráknum frá sér. Drengurinn féll til jarðar og virtist meiddur í smástund, sem skapaði mikla spennu við hliðarlínuna þar sem leikmenn beggja liða blönduðu sér í málið.
O Pedro Neto empurrou o gandula pra pegar a bola 😳
— DataFut (@DataFutebol) March 11, 2026
Atvikið var skoðað af VAR-dómarateyminu en ákveðið var að grípa ekki inn í. Stuttu síðar bætti Khvicha Kvaratskhelia við fimmta marki PSG og innsiglaði 5-2 sigur franska liðsins.
Eftir leikinn bað Neto boltastrákinn afsökunar og gaf honum einnig leiktreyjuna sína. Í viðtali eftir leik sagðist hann sjá eftir hegðun sinni. „Ég vil biðjast afsökunar á því sem gerðist. Við vorum að tapa og ég vildi flýta leiknum. Ég ýtti honum aðeins í hita leiksins og sá strax að ég hafði meitt hann. Ég er ekki svona og þess vegna fór ég strax og baðst afsökunar,“ sagði Neto.
Atvikið vakti mikla athygli eftir leikinn en virðist hafa endað með sátt milli leikmannsins og boltastráksins.