fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433

Ungmennaþing KSÍ í mars – Vegleg dagskrá

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungmennaþing KSÍ verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ sunnudaginn 15. mars kl. 10:00-16:00.
Þingið er fyrir ungmenni á aldrinum 13-23 ára og má hvert félag senda sex fulltrúa á þingið. Ungmennaráð KSÍ hvetur félög til að huga að kynjajafnvægi þegar fulltrúar eru valdir á þingið.
Með ungmennaþingi vill KSÍ heyra raddir ungra iðkenda sem er stærstur hluti knattspyrnuiðkenda á Íslandi. Þátttakendur á ungmennaþinginu hafa möguleika á að sækjast eftir setu í ungmennaráði í kjölfar þingsins.
Tvö aðalumræðuefni verða tekin fyrir í ár. Ragnhildur Skúladóttir frá ÍSÍ mun halda stuttan fyrirlestur um íþróttir sem forvarnir og í kjölfarið verður farið í umræður í litlum hópum um fótbolta sem forvarnir.
Atli Guðnason mun halda erindi um verkefni sem er í gangi hjá FH sem kallast framhaldsbolti. Þar er strákum á framhaldsskólaaldri boðið að mæta og spila fótbolta sér að kostnaðarlausu. Í framhaldi af því verða umræður í minni hópum um aðgengi að fótbolta fyrir ungt fólk. Þar verður meðal annars skoðað:
  • Hvað getur KSÍ gert til að auka aðgengi ungmenna að fótbolta?
  • Hvað geta félögin gert?
  • Hvað geta sveitarfélögin gert?
  • Hvað geta skólarnir gert?
Von er á góðum gestum og verður mikil áhersla lögð á að allir skemmti sér vel og komi reynslunni ríkari út af þinginu.
Skráningafrestur er til mánudagsins 9. mars og fer skráning fram hér: Ungmennaþing KSÍ – Skráning – Fill in form
Dagskrá
09:30 – 10:00 Mæting
10:00 – 10:15 Setning þings – Björn Skúlason, eiginmaður forseta Íslands, setur þingið.
10:15 – 10:45 Hópefli
10:45 – 11:40 Erindi 1 + Umræður – Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ heldur erindi um íþróttir sem forvörn
11:40 – 12:10 Pizza og spurningakeppni í umsjón Stefáns Pálssonar sagnfræðings
12:10 – 12:45 Heimsókn – Davíð Snorri og Ólafur Kristjáns – Aðstoðarþjálfarar A landsliða karla og kvenna mæta og svara spurningum þinggesta
12:45 – 13:40 Erindi 2 + umræður – Atli Guðnason kynnir verkefnið Framhaldsbolti sem er í gangi hjá FH.
13:40 – 14:30 Skoðunarferð um KSÍ + Hópmynd
14:30 – 15:15 Fræðsluerindi – Vanda Sigurgeirsdóttir fyrrverandi formaður KSÍ og eigandi KVAN heldur fræðsluerindi um leiðtogahæfni.
15:15 – 16:00 Samantekt, erindi frá Ungmennaráði og lokaorð
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan