fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
433Sport

Útilokar ekki endurkomu til Englands

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 07:00

Ivan Toney. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ivan Toney, framherji Al Ahli og landsliðsmaður Englands, útilokar ekki endurkomu í ensku úrvalsdeildina í framtíðinni, þrátt fyrir að hafa hafnað tilboðum í janúarglugganum til að halda áfram í Sádi-Arabíu.

Toney gekk óvænt til liðs við Al Ahli frá Brentford sumarið 2024 fyrir um 40 milljónir punda. Nú, rúmum 18 mánuðum síðar, segist hann líða vel hjá félaginu og njóta lífsins í Sádi-Arabíu.

Hann átti afar gott fyrsta tímabil, skoraði 30 mörk í öllum keppnum, varð næstmarkahæstur í deildinni á eftir Cristiano Ronaldo og hjálpaði liðinu að vinna Asíumeistaradeildina. Þá vann Al Ahli einnig Ofurbikar Sádi-Arabíu í ágúst.

Aldrei segja aldrei,“ sagði Toney þegar hann var spurður um mögulega endurkomu til Englands. Hann segir þó að hann hafi markmið með Al Ahli og vilji skila félaginu titlum í þakklætisskyni fyrir traustið.

Toney kveðst sáttur, vel staðsettur og njóta fótboltans, og sjái því enga ástæðu til að yfirgefa félagið að svo stöddu. Hann segir framtíðina þó alltaf óskrifaða í fótbolta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire
433Sport
Fyrir 2 dögum

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“