fbpx
Sunnudagur 15.mars 2026
433Sport

Segir alla hjá Liverpool sátta með eyðslu síðasta sumars – Biður fólk um að gefa þessu smá tíma

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Richard Hughes yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool ræddi opinskátt um samstarf sitt við þjálfarann Arne Slot og segist fullviss um að dýru leikmannakaupin muni skila sér.

Í hlaðvarpinu The Reds Roundtable sagði Hughes að skýr verkaskipting ríkti innan félagsins. „Allt sem snýr að leikdegi, liðsvali og taktík er á borði þjálfarans. Það er hans svið og mikilvægt að stíga ekki yfir þau mörk,“ sagði hann.

Hann bætti við að þeir ræði frammistöðu og fótbolta almennt, en leyfi Slot alltaf að leiða þær umræður.

Liverpool keypti marga leikmenn fyrir háar upphæðir í sumar og hafa sumir þurft tíma til að aðlagast ensku úrvalsdeildinni. Hughes segir það eðlilegt. „Ungir leikmenn sem koma úr öðru umhverfi þurfa tíma til að aðlagast. Við viljum styðja þá utan vallar en ekki kæfa þá,“ sagði hann.

Að lokum lagði hann áherslu á að leikmennirnir væru keyptir af ástæðu. „Þeir eru toppleikmenn og við vorum öll ánægð með sumargluggann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sendi Arteta skilaboð eftir að hafa gagnrýnt hann opinberlega

Sendi Arteta skilaboð eftir að hafa gagnrýnt hann opinberlega
433Sport
Í gær

Barcelona opnar samtal við City – Vilja vera í forgangi ef Haaland verður seldur

Barcelona opnar samtal við City – Vilja vera í forgangi ef Haaland verður seldur
433Sport
Í gær

Brotist inn á heimili Alberts í gærkvöldi sem býður fundarlaun – Miklum verðmætum stolið

Brotist inn á heimili Alberts í gærkvöldi sem býður fundarlaun – Miklum verðmætum stolið
433Sport
Í gær

Eiður Smári ráðleggur Jóhanni Berg – Gæti hann endað í Breiðablik á næstu vikum?

Eiður Smári ráðleggur Jóhanni Berg – Gæti hann endað í Breiðablik á næstu vikum?