fbpx
Laugardagur 07.mars 2026
433Sport

Davíð Kristján mættur til Grikklands

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 17:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Kristján Ólafsson hefur skrifað undir hjá AEL Novibet FC í grísku úrvalsdeildinni, Davíð er 31 árs varnarmaður sem kemur frá pólska félaginu KS Cracovia.

Vinstri bakvörðurinn hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út yfirstandandi tímabil.

Davíð er fæddur 15. maí 1995, er 184 cm á hæð og hóf meistaraflokksferil sinn hjá Breiðablik, þar sem hann lék 126 leiki, skoraði 7 mörk og lagði upp 5.

Í kjölfarið lék hann með Aalesunds FK í Noregi og Kalmar FF í Svíþjóð, með samtals yfir 140 leiki á Norðurlöndunum. Hann hélt þaðan til Póllands.

Davíð hefur leikið 15 landsleiki fyrir Ísland og skorað eitt mark. Hann síðasti landsleikur hans var í mars 2023 gegn Liechtenstein í undankeppni EM, þar sem hann skoraði mark og lagði einnig upp.

Hjá Cracovia lék hann frá febrúar 2024 og skilaði 5 mörkum og 7 stoðsendingum í 52 leikjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sagt að staða Arne Slot verði skoðuð í sumar – Bara einn maður orðaður við starfið

Sagt að staða Arne Slot verði skoðuð í sumar – Bara einn maður orðaður við starfið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ræðir málið í fyrsta sinn með tárin í augunum – Sonur hans lést í hræðilegu slysi fyrir nokkrum árum

Ræðir málið í fyrsta sinn með tárin í augunum – Sonur hans lést í hræðilegu slysi fyrir nokkrum árum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Love Island stjarna opnar sig um framhjáhald sem hún varð fyrir – Var í sambandi með frægum knattspyrnumanni

Love Island stjarna opnar sig um framhjáhald sem hún varð fyrir – Var í sambandi með frægum knattspyrnumanni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sambandið ný hafið – Hún fékk kreditkort og má strauja það eins og hún vill

Sambandið ný hafið – Hún fékk kreditkort og má strauja það eins og hún vill
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Myndband af Sydney Sweeney fer eins og eldur um sinu – Uppljóstrun hennar í kjölfarið vekur athygli

Myndband af Sydney Sweeney fer eins og eldur um sinu – Uppljóstrun hennar í kjölfarið vekur athygli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bale segir þetta stóra ástæðu fyrir því að hann hætti snemma í fótbolta

Bale segir þetta stóra ástæðu fyrir því að hann hætti snemma í fótbolta
433Sport
Í gær

Bæjarar halda áfram að horfa til Englands eftir góð kaup síðustu ár

Bæjarar halda áfram að horfa til Englands eftir góð kaup síðustu ár
433Sport
Í gær

Skutu á hótelið sem hann dvaldi á – „Algjör ringulreið“

Skutu á hótelið sem hann dvaldi á – „Algjör ringulreið“