Samkvæmt fréttum er formlegt samtal milli Sporting Lisbon og Manchester United farið af stað gegn Viktor Gyokeres.
Ruben Amorim stjóri United vill fá sænska framherjann til sín, þeir unnu vel saman hjá Sporting.
Gyokeres má fara fyrir 58 milljónir punda í sumar en Amorim leggur þunga áherslu á að styrkja sóknarleikinn.
United er búið að kaupa Matheus Cunha frá Wolves og nálgast kaup á Bryan Mbuemo frá Brentford.
Sky Sports segir samtal United og Sporting í gangi en niðurskuður félagsins utan vallar skilar því nú að félagið hefur meiri fjármuni í leikmenn en gert var ráð fyrir.