Dortmund hefur staðfest kaup sín á Jobe Bellingham frá Sunderland. Hefur þetta lengi legið í lofinu.
Jobe gerir fimm ára samning við Dortmund.
Hann fetar þar með í fótspor Jude Bellingham, eldri bróður síns og fer nú til Dortmund.
Jobe er öflugur miðjumaður sem kom til Sunderland frá Birmingham og kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina.
Jobe er miðjumaður líkt og Jude en bróðir hans átti frábæran tíma í Dortmund áður en hann var seldur til Real Madrid.