fbpx
Föstudagur 16.janúar 2026
433Sport

Telja að letjandi umhverfi á Íslandi sé ástæða þess að ungir menn koma heim – Geti þrefaldað sig í launum hér á landi

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. desember 2025 08:30

Gunnar Birgisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónatan Guðni Arnarsson ungur leikmaður Norrköping í Svíþjóð er sagður á heimleið og er sagður funda með ansi mörgum áhugasömum félögum.

Jónatan er fæddur árið 2007 og spilaði tíu leiki í efstu deild Svíþjóðar í vetur þegar liðið féll úr deildinni.

„Strákur sem er fæddur árið 2007 og spilaði tíu leiki fyrir Norköpping, hann hefur ekkert heim að gera. Ég vona að það sé allt í lagi, hann má ekkert fara heim eftir þessa leiki með sænska liðinu,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football hlaðvarpinu í gær.

Gunnar Birgisson fréttamaður RÚV segir það letjandi umhverfi á Íslandi að kenna að ungir leikmenn komi heim.

„Ég skil þetta ekki, af hverju menn þrauka ekki lengur. Ég held að menn hljóti horfa í það hvað launaumhverfið hérna er algjörlega bilað. Þú þarft að koma þér fyrir í eitt tímabil og tvöfaldar eða þrefaldar þig í launum þegar þú kemur heim. Þetta er letjandi umhverfi.“

Jónatan Guðni lék með Fjölni áður en hann fór út.

„Það er mjög sérstakt að hann vilji koma heim, hann er að funda með liðum hérna. Hann virðist á heimleið, ef hann saknar pizzu hjá mömmu með Kjarnafæði pepperoni. Fáðu þér það núna í tvær vikur,“ sagði Hjörvar að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjá ekki not fyrir leikmann Arsenal og vilja senda hann til baka

Sjá ekki not fyrir leikmann Arsenal og vilja senda hann til baka
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Maguire að taka óvænt skref?

Maguire að taka óvænt skref?
Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno Fernandes áfram í bili en skoðar sín mál í sumar

Bruno Fernandes áfram í bili en skoðar sín mál í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hjálpaði Liverpool að vinna Englandsmeistaratitilinn en er nú mættur til starfa hjá Tottenham

Hjálpaði Liverpool að vinna Englandsmeistaratitilinn en er nú mættur til starfa hjá Tottenham
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Viðar Örn opnar sig um áfengis- og spilafíkn – „Ég missti stjórnina“

Viðar Örn opnar sig um áfengis- og spilafíkn – „Ég missti stjórnina“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu atvik sem fór framhjá mörgum áhorfendum heima í stofu í gær – Samstarfsmenn tókust harkalega á

Sjáðu atvik sem fór framhjá mörgum áhorfendum heima í stofu í gær – Samstarfsmenn tókust harkalega á