

Jesse Lingard hefur kvatt FC Seoul á samfélagsmiðlum eftir að hafa skorað í sínum síðasta leik fyrir félagið.
Hinn 32 ára gamli fyrrum miðjumaður Manchester United tilkynnti í síðustu viku að hann og suður-kóreska félagið hefðu komist að samkomulagi um að slíta samningi sínum, tveimur árum eftir óvænta komu hans í K League 1.
Lingard skoraði í 1-1 jafntefli gegn Melbourne City í Meistaradeild Asíu og fór kveðjuathöfn fram eftir leik.
Á Instagram skrifaði hann: „Bless FC Seoul. Það hefur verið heiður að spila fyrir þetta félag. Þið munuð alltaf eiga stað í hjarta mínu.“
Lingard er orðaður við endurkomu til Englands en hann lék áður með Manchester United, West Ham og fleiri liðum.