

„Þetta er mikill léttir, þetta hafa verið tæp þrjú ár. Þetta hefur tekið á fyrir mig og mína fjölskyldu, ég er mjög ánægður að þetta sé loksins búið. Að sannleikurinn sé komin í ljós,“ þetta segir Albert Guðmundsson landsliðsmaður Íslands í fótbolta í hlaðvarpinu Chess after Dark sem kom út í gær.
Albert var hreinsaður af ásökunum um nauðgun í Landsrétti á dögunum, málið fer ekki lengra. Málið hafði verið í kerfinu í um tuttugu mánuði en Albert var sýknaður bæði í Héraðsdómi og í Landsrétti.
Íslensk kona kærði Albert og sakaði hann um að hafa brotið á sér kynferðislega sumarið 2023 en Albert hefur alla tíð neitað sök í málinu.
Í viðtalinu er Albert beðin um að fara yfir daginn þar sem honum var ljóst að málið væri komið lengra í kerfinu. „Auðvitað voru þarna einhver skilaboð milli mín og lögmanna míns fyrir, ég gleymdi aldrei deginum þegar þetta kom á alla fréttamiðla. Ég fékk enga viðvörun fyrir það, ég var á æfingu hjá Genoa í ágúst. Ég kem inn af æfingu og fer inn í klefa, er að slaka á og kíki á símann. Sé að mamma er búin að hringja í mig sex sinnum, pabbi fjórum sinnum, Gulla (Barnsmóðir Alberts) þrisvar og Villi Vill svona átta sinum.“
Meira:
Dómurinn yfir Albert birtur: Segist hafa krossbrugðið þegar fólk fór að kalla hann nauðgara
„Ég hugsa með mér að það væri eitthvað mikið að gerast, ég tékka á fréttamiðlana og sé að það er komin ákæra. Það var sjokk.“
Albert segir að málið hafi tekið mikið á sig en þakkar sínu nánasta fólki fyrir stuðninginn. „Þetta hefur tekið mjög á, það er ekki auðvelt að fara í gegnum þetta. Ég er mjög stoltur af sjálfum mér hvernig ég tæklaði þetta, ég hef náð að setja þetta til hliðar og fókusa á það sem skiptir máli í lífinu. Sem er fjölskylda, vinir og fótbolti, talandi um þau. Ég er mjög heppin með bakland, fjölskyldu og vini sem stóðu með mér í gegnum þennan erfiða tíma.“
Albert var spurður að því hvort hann hefði þurft að leita til sálfræðings vegna þess hversu alvarleg ásökunin var. „Ég gerði það ekki, ég var bara mjög viss í minni sök í þessu máli. Ég vissi hvað gerðist þetta kvöld, allir vinir mínir og fjölskylda trúðu mér varðandi það. Ég er ekki að segja að ég hafi ekki þurft það, það vill enginn vera ásakaður um hluti sem hann gerði ekki. Á þessu augnabliki og enn í dag, hef ég ekki þurft á því að halda eins og er.“
„Ekkert eitthvað of lengi, þetta kom fljótt upp að það yrði ekki áfrýjað aftur. Mér fannst ég þurfa að koma nokkrum hlutum frá mér, vonandi með þessum orðum er þessu bara lokið.“