
Íslenskir dómarar verða að störfum í undankeppni EM 2027 hjá U21 karla í vikunni.
Um er að ræða leik Norður Írlands og Lettlands sem fram fer í Belfast nú á fimmtudag.
Ívar Orri Kristjánsson verður aðaldómari í leiknum og er með íslenskt teymi sér til halds og trausts einnig.
Birkir Sigurðarson og Ragnar Þór Bender verða aðstoðardómarar og þá verður fjórði dómari leiksins Þórður Þorsteinn Þórðarson.