
Aston Villa er sagt íhuga þann möguleika að fá Axel Disasi aftur til félagsins í janúar.
Disasi var á láni hjá Villa seinni hluta síðustu leiktíðar en sneri aftur til Chelsea í sumar. Þar fær hann ekkert að spila og má væntanlega finna sér nýtt lið.
Unai Emery, stjóri Villa, er klár í að endurnýja kynnin við Disasi, en hann er sagður horfa til þess að auka breiddina í varnarlínu sinni fyrir seinni hluta leiktíðar.
Disasi, sem er 27 ára gamall, gekk í raðir Chelsea frá Monaco sumarið 2023 en hefur ekki tekist að festa sig í sessi í London.