fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Arsenal biðlar til ensku úrvalsdeildarinnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur óskað eftir því að útileikur liðsins gegn Everton fyrir jól verði færður um einn dag til að forðast að spila tvo leiki á þremur dögum.

Leikurinn er sem stendur á dagskrá sunnudaginn 21. desember kl. 14:00, en Arsenal vill að hann fari í staðinn fram að kvöldi laugardagsins 20. desember.

Ástæðan er sú að Arsenal mætir Crystal Palace í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins þann 23. desember. Sá leikur var færður frá 16. desember, þar sem Palace spilar í Evrópudeildinni og hefði annars þurft að spila þrjá leiki á fimm dögum.

Arsenal vill því fá auka hvíldardag fyrir leikinn gegn Palace og hefur gert ensku úrvalsdeildinni grein fyrir því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar