fbpx
Laugardagur 06.desember 2025
433Sport

Hojlund hetja Manchester United – Kristian spilaði í tapi og Orri var ekki með vegna meiðsla

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 28. nóvember 2024 21:56

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Amorim vann sinn fyrsta sigur sem stjóri Manchester United þegar liðið fékk Bodo/Glimt frá Noregi í heimsókn í Evrópudeildinni í kvöld.

United vann þar nauman 3-2 sigur þrátt fyrir mikla yfirburði stærstan hluta leiksins. Alejandro Garnacho kom United yfir á annari mínútu.

Þeir norsku svöruðu fyrir sig og komust í 1-2 áður en Rasmus Hojlund jafnaði fyrir United skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks.

Hojlund skoraði svo eina markið í síðari hálfleik og tryggði United sigur og fína stöðu í Evrópudeildinni þegar tveir leikir eru eftir í deildarkeppni.

Tottenham gerði 2-2 jafntefli gegn Roma þar sem Son Heung-Min og Brennan Johnson voru á skotskónum. Tottenham var 2-1 yfir þegar komið var fram í uppbótartíma en þá jafnaði Mats Hummels fyrir gestina.

Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði síðustu 15 mínúturnar fyrir Ajax þegar liðið tapaði 2-0 gegn Real Sociedad. Orri Steinn Óskarsson var frá vegna meiðsla.

Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland sem tapaði gegn Frankfurt á heimavelli. Andri Fannar Baldursson byrjaði í liði Elfsborg í tapi gegn Athletic Bilbao en Eggert Aron Guðmundsson var ekki í hóp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sautján Íslendingar náðu sér í UEFA Pro gráðuna – Margir þekktir þjálfarar

Sautján Íslendingar náðu sér í UEFA Pro gráðuna – Margir þekktir þjálfarar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United leitar að leikmanni í janúar vegna óléttu

United leitar að leikmanni í janúar vegna óléttu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arteta með loðin svör um stöðuna fyrir morgundaginn

Arteta með loðin svör um stöðuna fyrir morgundaginn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hvernig fékk leikmaður West Ham ekki rautt spjald í gær? – Sjáðu atvikið

Hvernig fékk leikmaður West Ham ekki rautt spjald í gær? – Sjáðu atvikið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Glímir við mjög alvarlegt krabbamein – Hélt að þetta væri búið en svo kom það aftur

Glímir við mjög alvarlegt krabbamein – Hélt að þetta væri búið en svo kom það aftur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Urðar yfir Guardiola og segist ekki sjá mann – Sér bara snák

Urðar yfir Guardiola og segist ekki sjá mann – Sér bara snák