Tanya Bardsley, eiginkona fyrrum stjörnunnar Phil Bardsley segist stunda kynlíf með eiginmanni sínum á hverjum degi til að passa að hann sofi ekki hjá öðrum konum.
Tanya er 43 ára gömul en Bardsley fagnaði 39 ára afmæli sínu á þessu ári. Bardsley er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Sunderland í efstu deild en hann á einnig að baki leiki fyrir lið eins og Manchester United, Stoke og Burnley.
Bardsley lék 13 landsleiki fyrir Skotland en hann ákvað að leggja skóna á hilluna í fyrra eftir dvöl hjá Stockport.
„Ég er ennþá mjög hrifin af Phil, hann er fallegri í dag en þegar við kynntumst,“ sagði Tanya um samband hjónanna.
,,Ég hef náð mínum tökum á þetta samband. Móðir mín var dugleg að segja mér að sjá vel um eiginmanninn, annars myndi önnur kona gera það. Þetta er eins og að vökva garðinn.“
Tanya fer enn lengra og segir að hún og Bardsley stundi kynlíf á hverjum degi þar sem hún vill halda eiginmanni sínum hamingjusömum.
,,Það eru ekki allir sem stunda kynlíf reglulega. Ef við erum ekki að stunda kynlíf þá erum við bara bestu vinir. Ég hefði áhyggjur af staðan væri önnur.“
,,Börnin geta spilað sinn þátt í þessu öllu saman en við nýtum þau tækifæri sem gefast. Hann þarf að vera snöggur og þetta getur jafnvel tekið tvær mínútur.