KR hefur mikið verið í umræðunni eftir fremur dapurt gengi liðsins í Bestu deild karla það sem af er. Margir velta því fyrir sér hvort starf þjálfarans Gregg Ryder sé í hættu.
KR hefur aðeins unnið einn af síðustu sex deildarleikjum og situr liðið í sjöunda sæti. Í kjölfarið hefur sprottið af stað umræða um Ryder og þá sérstaklega þegar ljóst varð að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé á lausu.
„Ég hef heyrt það. Ég heyrði það í dag frá miklum KR-ingi að það væri kominn ólga og titringur,“ sagði Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, í Innkastinu þegar talið barst að Ryder.
Baldvin Már Borgarsson var einnig í hljóðveri og telur hann ósætti aðallega vera á meðal stuðningsmanna KR.
„Ég held að stuðningsmenn séu ósáttir við gengi liðsins. Ég held að Gregg sé ekki slæmur þjálfari og ef hann fær að halda áfram að móta liðið út næsta tímabil, þá gæti hann verið kominn með samkeppnishæft lið,“ sagði Baldvin.
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ræddi við 433.is fyrir rúmum tveimur vikum í kjölfar þess að Óskar Hrafn sagði starfi sínu lausu hjá Haugesund í Noregi.
„Það er ekkert að gerast hjá okkur. Það er bara áfram gakk. Við erum bara að halda okkar striki,“ segir Páll þá, spurður út í stöðu Ryder.