Þorvaldur Örlygsson, rekstrarstjóri og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þorvaldur, sem var atvinnumaður í Þýskalandi og á Englandi um árabil, spilaði með KA, Fram og íslenska landsliðinu, þjálfaði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri landslið Íslands, þekkir íslenska knattspyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verkefni bíða KSÍ.
Hann mun berjast við Guðna Bergsson, fyrrum formann KSÍ um stólinn í Laugardalnum en Guðni staðfesti framboð sitt fyrir áramót. Fleiri gætu komið fram á næstu dögum.
Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að hætta sem formaður í febrúar eftir rúm tvö ár í starfi en ljóst er að nýr formaður þarf að taka til í bókhaldinu hjá KSÍ sem rekið var með miklu tapi á síðasta ári.
„Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“
Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs.
„Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni. Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna. Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“
Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna:
Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ
Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ
Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF
Stofna framkvæmdastjórn KSÍ
Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða
Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ
Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal
Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað
Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið