Það er í raun ótrúlegt hversu langt markmaðurinn Matt Turner hefur náð langt en hann er landsliðsmaður Bandaríkjanna.
Markmaðurinn á að baki sjö leiki fyrir Arsenal en var seldur til Nottingham Forest í sumar og er þar aðalmarkmaður.
Turner sýndi fótbolta afskaplega lítinn áhuga þar til hann varð 16 ára gamall en flestir fótboltamenn byrja mun fyrr en það.
Turner tók sína fyrstu markspyrnu þegar hann var 20 ára gamall en fyrir það bað hann varnarmenn sína um að sparka boltanum langt.
Hann er í dag 29 ára gamall og lék lengst með New England Revolution í MLS deildinni frá 2016 til 2022.
,,Það var HM árið 2010 sem kom mér almennilega inn í íþróttina. Ég var 16 ára gamall og byrjaði að spila fótbolta,“ sagði Turner.
,,Ég hafði áður íhugað að byrja að spila en ég sýndi hafnabolta og körfubolta meiri áhuga. Eldri systur mínar spiluðu fótbolta.“
,,Ég gat ekki tekið mínar eigin markspyrnur fyrr en ég var 20 ára gamall, ég var ekki með styrkinn í að lyfta boltanum svo hátt eða langt. Ég var markmaðurinn sem bað hafsentinn um að taka spyrnuna.„