Jessica Goicoechea birtir reglulega myndir á samfélagsmiðla sem vekja mikla athygli og er sú nýjasta engin undantekning.
Goicoechea er vel þekkt á meðal knattspyrnuaðdáenda en hún er kærasta varnarmannsins Marc Bartra sem gerði garðinn frægan með Barcelona.
Bartra hefur á ferli sínum spilað fyrir Borussia Dortmund, Real Betis og Trabzonspor, auk Börsunga.
Goicoechea er afar vinsæl á samfélagsmiðlum og birtir reglulega djarfar myndir sem slá í gegn. Hún hefur af mörgum verið sögð fallegasta kona heims.
Á dögunum birti hún af sér þar sem hún er nakin en hún fer krókaleiðir þar sem nekt er bönnuð á samfélagsmiðlum.
Myndin er hér að neðan.