fbpx
Laugardagur 30.september 2023
433Sport

Mynd frá Zlatan blaut tuska í andlit leikmanns Manchester United

Helgi Sigurðsson
Föstudaginn 9. júní 2023 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og flestir vita lagði Zlatan Ibrahimovic skóna á hilluna í byrjun vikunnar eftir glæstan feril.

Zlatan átti stórkostlegan feril. Hann skoraði 511 mörk í félagsliðaboltanum fyrir Malmö, Ajax, Juventus, Barcelona, Inter, PSG, Man United, LA Galaxy og Milan.

Þá skoraði framherjinn stóri og stæðilegi 62 mörk í 122 A-landsleikjum fyrir Svíþjóð.

Enskir miðlar rifja nú upp sögur af Zlatan og meðal annars þegar hann valdi draumalið leikmanna sem hann hefur spilað með í gegnum tíðina.

Þar er úr nógu að velja. Í handskrifuðu draumaliði Zlatan má sjá Gianluigi Buffon í markinu. Varnarlínan samanstendur af Lilian Thuram, Thiago Silva, Alessandro Nesta og Maxwell.

Patrick Vieira, Xavi og Pavel Nedved eru á miðjunni og frammi eru hann sjálfurm Lionel Messi og Ronaldinho.

Zlatan setti svo fimm leikmenn á bekkinn en hann ætlaði að bæta við sjötta leikmanninum. Það má sjá að hann hefur krotað út nafn David De Gea, markvarðar Manchester United.

Kaldar kveðjur. Mynd af þessu er hér að neðan.

Enski boltinn á 433 er í boði
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Kamala Harris í vanda

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kemur út í kvöld – Gunnhildur Yrsa gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kemur út í kvöld – Gunnhildur Yrsa gestur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Maðurinn á brúnni ekki lengur í hættu

Maðurinn á brúnni ekki lengur í hættu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Arsenal nú orðaður við Liverpool

Fyrrum leikmaður Arsenal nú orðaður við Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rjúfa loks þögnina og svara fyrir mjög umdeild myndbönd

Rjúfa loks þögnina og svara fyrir mjög umdeild myndbönd