Jude Bellingham er að ganga frá samningi sínum við Real Madrid en félögin eru sögð nálgast samkomulag um kaupverðið.
Nokkrar vikur eru frá því er að greint var frá því að Bellingham hefði ákveðið að fara til Madrid.
Enski landsliðsmaðurinn hefur átt góð ár hjá Dortmund en fjöldi liða hafði áhuga á honum. Liverpool hætti við að reyna og taldi félagið sig ekki hafa efni á honum.
Bellingham er 19 ára gamall en fjölmiðlar á Spáni greina nú frá því að hann fari í treyju númer 7 hjá spænska risanum.
Eden Hazard samdi um starfslok við Real Madrid um helgina og nú hefur verið greint frá því að Bellingham taki treyjunúmer hans.
Bellingham ólst upp hjá Birmingham en fór til Dortmund til að þróa leikinn sem hefur heppnast vel.