Kasakstan gerði sér lítið fyrir og vann Dani með þremur mörkum gegn tveimur í undankeppni EM í dag.
Um var að ræða ótrúlega endurkomu Kasakstan sem lenti 2-0 undir gegn sterku dönsku liði.
Heimaliðið neitaði þó að gefast upp og vann að lokum 3-2 en tvö síðustu mörkin voru skoruð í blálokin.
England vann þá sitt verkefni gegn Úkraínu þar sem Harry Kane og Bukayo sama komust báðir á blað.
Kasakstan 3 – 2 Danmörk
0-1 Rasmus Hojlund(’21)
0-2 Rasmus Hojlund(’36)
1-2 Baktiyor Zainutdinov(’73, víti)
2-2 Askhat Tagybergen(’86 )
3-2 Abat Aimbetov(’89)
England 2 – 0 Úkraína
1-0 Harry Kane(’37)
2-0 Bukayo Saka(’40)