Zlatan Ibrahimovic er 41 árs gamall en þessi sænski framherji er mættur aftur í landsliðið eftir að náð sér af alvarlegum meiðslum.
Zlatan er á mála hjá AC Milan en hann mætti á fréttamannafund í Svíþjóð í dag.
Zlatan fór sem gestur á Heimsmeistaramótið í Katar og var spurður út í þá upplifun, vildi blaðamaðurinn vita hvað Zlatan fannst um landið sem þótti umdeilt að hljóta stærsta íþróttaviðburð í heimi.
Zlatan sagði að allt í Katar væri eins og best verður á kosið, maturinn fékk 10 í einkunn, fólkið fékk 10 í einkunn og allt annað sem
Zlatan mundi eftir fékk 10 í einkunn.
„Var þetta ekki svarið sem þú vildir,“ sagði Zlatan við blaðamanninn sem fór þá að ræða um að það hefði verið umdeilt að halda mótið Í Katar.
Zlatan hélt sig við sama svar, allt í Katar fékk 10 í einkunn.
Jättehyllningen till Qatar-VM.
Zlatan Ibrahimovic besökte VM i Qatar och när han på en presskonferens med landslaget fick frågan om vad han tyckte om landet och mästerskapet hyllade han allt. pic.twitter.com/b7mm8cNIMZ— SVT Sport (@SVTSport) March 21, 2023