fbpx
Föstudagur 24.mars 2023
433Sport

Telur að ekki verði tekið tillit til tíma Gylfa Þórs í farbanni verði hann fundinn sekur – Næstu skref gætu orðið ljós á næstu vikum

433
Þriðjudaginn 7. febrúar 2023 08:00

Gylfi Þór Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dino Nocivelli, lögmaður í Bretlandi sem sérhæfir sig meðal annars í málum er snúa að meintum kynferðisofbeldi gegn ólögráða einstaklingum, telur að ekki verði tekið tillit til tímans sem íslenski knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í farbanni, fari svo að hann verði dæmdur til fangelsisvistar í máli sem nú liggur á borði Saksóknaraembættis bresku krúnunnar.

Frá þessu greinir hann í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins í dag. Þar er tekið fram að Nocivelli geti ekki, sökum laga í Bretlandi tjáð sig með beinum hætti um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar sem var þann 16. júlí árið 2021 handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.

Af fyrri dæmum sé þó hægt að reyna átta sig á hvenær niðurstaða, um það hvort ákæra eigi í málinu eða láta það niður falla, fáist frá saksóknaraembættinu.

„Það mætti vonast eftir niður­­­stöðu um næstu skref fyrir lok mars,“ segir Nocivelli í svari til Fréttablaðsins.

Lög­reglan í Greater Manchester hefur lokið rann­­sókn sinni og er málið nú komið inn á borð sak­­sóknara­em­bættis bresku krúnunnar sem fer yfir gögn málsins og á­kvarðar næstu skref.

Frá því skömmu efir handtöku hefur Gylfi Þór verið laus gegn tryggingu og í farbanni. Dino telur að ekki verði tekið til­­lit til þess fari svo að á­kært verði í málinu og Gylfi fundinn sekur.

„Ég tel svo ekki vera,“ segir Dino í svari til Fréttablaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rooney bregst við stórtíðindum gærkvöldsins í færslu á samfélagsmiðlum

Rooney bregst við stórtíðindum gærkvöldsins í færslu á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: FHingar frumsýna nýjar treyjur fyrir komandi tímabil með veglegu myndbandi

Sjáðu myndbandið: FHingar frumsýna nýjar treyjur fyrir komandi tímabil með veglegu myndbandi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Auknar líkur á því að Glazer fjölskyldan muni ekki selja United

Auknar líkur á því að Glazer fjölskyldan muni ekki selja United
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ný ritgerð varpar skýrara ljósi á KSÍ krísuna: Ekki góð hugmynd að ræða við RÚV – „Það var ákvörðun Guðna og ráðgjafanna“

Ný ritgerð varpar skýrara ljósi á KSÍ krísuna: Ekki góð hugmynd að ræða við RÚV – „Það var ákvörðun Guðna og ráðgjafanna“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Einkunnir úr slæmu tapi Íslands gegn Bosníu: Hæsta einkunn 5 – Varnarlínan fær falleinkunn

Einkunnir úr slæmu tapi Íslands gegn Bosníu: Hæsta einkunn 5 – Varnarlínan fær falleinkunn
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Íslenska landsliðið beið afhroð í Bosníu

Íslenska landsliðið beið afhroð í Bosníu