Kallað var eftir tilnefningum úr hreyfingunni og frá landsmönnum og bárust alls 163 tilnefningar um alls 112 einstaklinga úr 20 íþróttagreinum. Úr röðum þeirra hefur sérstök valnefnd valið þrjá einstaklinga og mun einn þeirra hljóta heiðursviðurkenninguna Íþróttaeldhugi ársins 2023. Tilkynnt verður um úrslitin, eins og áður sagði, í hófi um kjör Íþróttamanns ársins 2023. Valnefndin var skipuð þeim Þóreyju Eddu Elísdóttur formanni, Kristínu Rós Hákonardóttur, Margréti Láru Viðarsdóttur, Snorra Einarssyni og Degi Sigurðssyni.
Þeir einstaklingar sem valnefndin valdi, úr röðum tilnefninga, eru:
Edvard Skúlason (knattspyrna), hefur starfað fyrir Knattspyrnufélagið Val.
Guðrún Kristín Einarsdóttir (blak) hefur starfað fyrir Aftureldingu og Blaksamband Íslands. Ólafur Elí Magnússon (borðtennis, glíma blak, badminton, frjálsíþróttir) hefur starfað fyrir Íþróttafélagið Dímon.Öll hafa þau unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþrótta til áratuga.