Andy Carroll fór ekki vel með peningana á sínum yngri árum er hann var að vekja athygli sem leikmaður Newcastle.
Carroll greinir sjálfur frá þessu en hann er í dag 34 ára gamall og spilar Amiens í frönsku 2. deildinni.
Carroll var fljótur að vekja athygli er hann var á mála hjá Newcastle og var svo keyptur til Liverpool árið 2011 þar sem hlutirnir gengu ekki up.
Englendingurinn viðurkennir að hafa farið illa með peninga sem táningur og keypti til að mynda kött fyrir tæplega 200 þúsund krónur en losaði sig við dýrið aðeins tveimur vikum seinna.
,,Þú ert 17 ára gamall og ert að þéna alla þessa peninga, enginn af vinum þínum er að þéna eins svo þeir fylgja þér hvert sem þú ferð,“ sagði Carroll.
,,Ég hef eytt peningum í fáránlega hluti, það eru peningar sem ég sé aldrei aftur. Allir í klefanum keyrðu um á rándýrum bílum eða klæddu sig í rándýr föt og ég hugsaði með mér að ég þyrfti að gera eitthvað svipað.“
,,Ég fann sjaldgæfan Bengal kött og ákvað að kaupa hann, hann kostaði 170 þúsund krónur. Ég átti hann í tvær vikur…“