Það er mikið fjallað um konu að nafni Jemima Packington í enskum fjölmiðlum þessa helgina.
Um er að ræða svokallaðan miðil en hún hefur spáð fyrir um leik Englands og Spánar á sunnudaginn.
Þar munu liðin spila til úrslita í HM kvenna en bæði lið hafa spilað gríðarlega vel á mótinu hingað til.
Athygli vekur að þessi ágæta kona notar aspas til að spá fyrir um framtíðina og hefur gert í langan tíma.
Hún spáði fyrir um dauða Elísabetar drottningu fyrir ekki svo löngu og þá einnig að prins Harry og Meghan Markle myndu yfirgefa drottningsfjölskylduna.
Aspas spákonan er viss um að England hafi betur í þessari viðureign en að leikurinn verði að lokum spennandi.
,,Aspasinn segir mér að þessi leikur verði mjög spennandi og fari alla leið í vítaspyrnukeppni,“ sagði Jemima.
,,England mun að lokum vinna þennan leik, ég sé það. Aspasinn gat ekki sagt mér nákvæma útkomu en ég veit að leikurinn verður spennandi.“