Kylian Mbappe einn besti knattspyrnumaður í heimi var mættur í gleðskap í vikunni þar sem hann er staddur í Bandaríkunum. Margt af frægasta fólki í heimi var þangað mætt.
Myndir af Mbappe og Kim Kardashian hafa vakið mikla athygli en þau virka þar ansi náin hvor öðru og vekur það athygli.
Kardashian er einhleyp líkt og Mbappe en hún er ein frægasta kona í heimi og hann er einn frægasti karlmaður. Þau gætu orðið eitt áhugaverðasta ofurpar í heimi.
Bandaríski milljarðamæringurinn Michael G. Rubin, sem efnaðist á sportfatnaði og öllu sem því fylgir, vann sennilega samkvæmisleikinn í Bandaríkjunum þetta árið þegar hann fagnaði þjóðhátíðardegi Bandaríkjamanna, 4. júlí, í gær.
Rubin efndi til teitis í glæsihýsi sínu í The Hamptons, sumarleyfisstað ríka og fræga fólksins, eins og hann gerir árlega en í þetta skiptið var engu til sparað og fengu margar af stærstu stjörnum Bandaríkjanna boð og gott betur en það, stjörnurnar mættu.
Meðal gesta voru Leonardo di Caprio, Kim Khardashian, Jay-Z og Beyonce, Ben Affleck og Jennifer Lopez, Tom Brady og þá voru körfuboltamenn úr NBA-deildinni á borð við James Harden og Joel Embiid áberandi en Rubin átti um tíma NBA-liðið Phildelphia 76ers.
Það er spurning hvort eittvað sjáist meira af Kim og Mbappe saman á næstunni.