Barcelona vonast til fá Lionel Messi aftur til liðs við sig og er með plan um hvernig á að gera það. Spænska blaðið Sport segir frá.
Það er ljóst að Messi er á förum frá Paris Saint-Germain þegar samningur hans rennur út í sumar. Messi var í vikunni settur í tveggja vikna bann af PSG. Hann hafði skrópað á æfingu og slakað á í Sádi-Arabíu. Christophe Galtier, þjálfari liðsins, hefur viljað taka á agavandamálum félagsins og að setja Messi í bann er hluti af því.
Galtier hafði boðað frí frá æfingu á mánudag en tap gegn Lorient varð til þess að hann setti á æfingu, þá var Messi í Sádí Arabíu og komst ekki til baka. Talið er að Argentínumaðurinn gæti þénað yfir þrjá milljarða á ári fyrir að auglýsa Sádi-Arabíu. Inni í samningi hans við landið er ferð þangað að minnsta kosti einu sinni á ári.
Það var svo endanlega greint frá því að Messi færi frá PSG í vikunni.
Barcelona vill fá hann aftur, en Messi yfirgaf félagið með tárin í augunum sumarið 2021. Vildi hann helst ekki fara en Börsungar höfðu ekki efni á að halda honum.
Sport segir að Barcelona ætli að bjóða Messi tveggja ára samning þar sem laun hans yrðu aðeins fjórðungur af sem hann var með síðast hjá félaginu. Þá var hann með 100 milljónir punda á ári.