Það var rætt um félagaskipti Olivers Heiðarssonar í hlaðvarpinu Dr. Football á fimmtudag.
Oliver gekk í raðir ÍBV frá FH. Þetta var staðfest á lokadegi gluggans. Viðræður höfðu átt sér stað á milli ÍBV og FH undanfarið og náðist samkomulag að lokum.
Oliver, sem er fæddur árið 2001, skoraði fimm mörk í 31 leik fyrir FH í deild og bikar á síðustu leiktíð.
„Gaflararnir tala um að hann hafi kostað 7 milljónir,“ sagði Hjörvar Hafliðason í þætti dagsins.
Gunnar Birgisson var gestur í dag og tók til máls. „Ég er ánægður með að íslenski markaðurinn sé að opnast. Hérna áður fyrr bauðstu í leikmann í einhverju liði og hitt liðið fór í fýlu.“
Jóhann Már Helgason tók undir með honum.
„Það er gaman að það sé lifandi félagaskiptamarkaður. Miklu skemmtilegra.“
Það var rætt um sama mál í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin á fimmtudag þar sem Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson fóru yfir stöðuna.
Kristján segir að Oliver hafi ekki kostað nálægt sjö milljónum og að verðmiðinn hafi verið í kringum 300 þúsund krónur.
,,Ég trúi ekki fyrir mitt litla líf að FH hafi selt Oliver Heiðarsson fyrir 300 þúsund krónur,“ segir Mikael.
,,Einhverjir sögðu sjö og hálf milljón en það er náttúrulega bara mesta steypa sem ég hef heyrt,“ segir Kristján á móti.
,,Hvor er áreiðanlegri í fjármálum, Höfðinginn eða Bondarinn?“ bætir Kristján við og á þar við Sigurð Gísla Bond Snorrason sem er reglulegur gestur í Dr. Football.
Mikael svaraði svo og segir að það sé ekki möguleiki að þessi efnilegi leikmaður hafi farið á svo lítið.
,,300 þúsund? Það er ekki séns. Þú þarft að kafa betur ofan í þetta, það er ekki séns að FH hafi selt hann fyrir 300 þúsund. Þá er alveg eins gott að fá núll krónur en áfram gakk.“