Michael Skubala stýrir Leeds til bráðabirgða í kjölfar þess að Jesse Marsch var látinn fara.
Leeds mætti Manchester United á Old Trafford í gær. Gestirnir voru fljótir að láta finna fyrir sér því strax á 1. mínútu leiksins skoraði Wilfried Gnonto eftir stoðsendingu frá Patrick Bamford. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins.
Það var síðan á fyrstu mínútum fyrri hálfleiksins sem forysta Leeds United tvöfaldaðist. Á 48. mínútu varð Raphael Varane, varnarmaður Manchester United fyrir því óláni að koma boltanum í sitt eigið net og staðan því orðin 2-0 fyrir gestina frá Leeds.
Á 59. mínútu gerði Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United tvöfalda skiptingu. Inn á komu Jadon Sancho og Facundo Pellistri og af velli fóru þeir Wout Weghorst og Alejandro Garnacho, stuttu seinna fóru hlutirnir að gerast.
Marcus Rashford, sem farið hefur með himinskautum á yfirstandandi tímabili, minnkaði muninn fyrir Manchester United með marki á 62. mínútu.
Það var síðan tæpum átta mínútum síðar sem Jadon Sancho jafnaði metin fyrir heimamenn en hann hafði komið inn sem varamaður rétt rúmum tíu mínútum fyrir markið.
Þetta reyndist lokamark leiksins sem endaði með 2-2 jafntefli.
Á tímapunkti í leiknum beindust myndavélarnar að Skubala og punktum sem hann hafði skrifað niður.
Þar stóð loka miðsvæðinu, trúa, vera rólegir. Einn punktur var í viðbót en ómögulegt að sjá hann.