Breiðablik 1 – 0 Valur
1-0 Ísak Snær Þorvaldsson(’63)
Það stefnir ekkert annað en í að Breiðablik verði Íslandsmeistari í Bestu deild karla sumarið 2022 þegar 20 ufmerðir eru búnar.
Blikar spiluðu við lið Val á heimavelli sínum í kvöld og unnu 1-0 sigur þar sem Ísak Snær Þorvaldsson gerði eina markið.
Ísak var að skora sitt fyrsta mark í um mánuð en hann var um tíma heitasti leikmaður deildarinnar.
Breiðablik er með 11 stiga forskot á toppnum þegar tvær umferðir af venjulegri deildarkeppni eru eftir.
Valur er í fjórða sætinu með 32 stig og er fjórum stigum á eftir Víkingum í þriðja sæti sem eiga leik til góða.