Afturelding hefur heldur betur bryddað upp á nýjungum á heimavelli sínum í Mosfellsbæ í gær.
Liðið leikur í Lengjudeildinni. Í sumar hefur verið boðið upp á klippingu, rauðvínssmökkun, nudd og fleira í stúkunni á meðan leikjunum stendur.
Á leiknum í kvöld fá stuðningsmenn tækifæri til að kaupa sér miða í heitan pott og fylgjast með leiknum þaðan.
Pottarnir, sem eru frá Húsasmiðjunni, verða svo til sölu eftir leik.
Hægt er að kaupa aðgang að heita pottinum fyrir leik kvöldsins á afturelding@simnet.is, í síma 6952642 eða með því að senda Aftureldingu skilaboð á samfélagsmiðlum. Verð er 4 þúsund krónur. Inn í því er aðgangur að leiknum í heita pottinum, handklæði og sloppur frá World Class og frír drykkur í pottinum.