⦁ Ismaila Sarr skoraði svakalegt mark í Championship-deildinni í kvöld er Watford mætti West Brom.
Sarr er einn allra besti leikmaður næst efstu deildar Englands og á klárlega heima í betri deild.
Vængmaðurinn skoraði fyrir aftan miðju í 1-1 jafntefli í kvöld en hann gerði mark sitt eftir 12 mínútur.
Seinna í leiknum gat Sarr tryggt sigurinn en hann klikkaði á vítaspyrnu á 73. mínútu.
Mark hans í kvöl má sjá hér.
Ismaila Sarr warra goal pic.twitter.com/9t5PJjnTkf
— FPL Konate (@Konate_FPL) August 8, 2022