Everton 0 – 1 Chelsea
0-1 Jorginho(’45, víti)
Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en spilað var á Goodison Park í Liverpool.
Frank Lampard og hans menn í Everton fengu þar Chelsea í heimsókn en hann er sjálfur fyrrum leikmaður og þjálfari þess síðarnefnda.
Leikurinn var engin markaveisla að þessu sinni en það var vítaspyrna sem skildi liðin að í lokin.
Miðjumaðurinn Jorginho skoraði úr vítaspyrnu í uppbótartíma í fyrri hálfleik sem reyndist nóg fyrir sigrinum.