Wesley Fofana, miðvörður Leicester, hefur tjáð félaginu að hann vili fara til Chelsea. Guardian greinir frá.
Hinn 21 árs gamli Fofana gekk í raðir Leicester fyrir tveimur árum síðan og hefur heillað mikið frá komu sinni.
Leicester vill fá 85 milljónir punda fyrir leikmanninn. Borgi Chelsea þá upphæð, verður hann dýrasti varnarmaður allra tíma. Hann myndi þar með taka fram úr Harry Maguire í þeim efnum, enski landsliðsmaðurinn fór einmitt frá Leicester til Manchester United á 80 milljónir punda fyrir þremur árum.
Samkvæmt frétt Guardian mun Chelsea að lokum rífa upp veskið og borga það sem Leicester biður um fyrir Fofana.
Chelsea missti miðverðina Andreas Christensen og Antonio Rudiger frá sér til Barcelona og Real Madrid fyrr í sumar. Félagið fyllti í skarð þeirra með því að kaupa Kalidou Koulibaly frá Napoli.
Hins vegar vill Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, fá einn miðvörð í viðbót. Ekki er ólíklegt að það verði Fofana.