Manchester United hefði átt að reyna við Conor Coady í sumar en hann fékk grænt ljós á að yfirgefa Wolves.
Þetta segir fyrrum leikmaður Arsenal, Paul Merson, en Coady gerði á dögunum samning við Everton.
Merson er á því máli að Coady hefði styrkt vörn Man Utd og segir að félagið geti ekki notað aðeins tvo hafsenta þegar annar þeirra er Harry Maguire.
,,Þeir hefðu átt að fá til sín Conor Coady. Þeir þurfa að spila með þrjá miðverði,“ sagði Merson.
,,Maguire, ég vil ekki halda áfram endalaust að tjá mig en hann getur ekki hlaupið. Þú þarft að spila með þrjá miðverði.“
,,Ef hann spilar í þriggja manna vörn er hann mjög góður leikmaður. Hann getur komið upp völlinn með boltann og gefið hann frá sér.“
,,Þegar hann spilar í fjögurra manna lína þá er hann ekki með sama frelsi og á það til að lenda í stöðunni einn gegn einum þar sem hann er í vandræðum.„