Kærasta vængmannsins Jack Harrison hefur vakið gríðarlega athygli en hún þykir vera ein myndarlegasta kona Bretlands.
Harrison spilar með Leeds United í ensku úrvalsdeildinni en þau eru bæði 25 ára gömul.
Stuðningsmenn Leeds sem og fleiri hafa misst sig yfir útliti kærustu Harrison sem ber nafnið Fiorella Arbenz.
Arbenz kemur frá Kosta Ríka og starfar sem fyrirsæta en hún er dugleg að mæta á leiki Leeds til að styðja við kærasta sinn.
Margir eru á því máli að Arbenz sé mögulega fallegasta kona Bretlands en hún græðir þúsundir fylgjenda á Instagram á hverjum degi eftir myndbirtingar.
Virkilega fallegt par sem má sjá hér fyrir neðan.