Manchester United hefur tjáð Paris Saint-Germain að Marcus Rashford sé ekki til sölu. Ólíklegt er að frönsku meistararnir reyni frekar við sóknarmanninn. Sky Sports segir frá þessu nú í morgunsárið.
Í gær fór af stað orðrómur um að PSG hefði áhuga á Rashford og að leikmanninn sjálfan langaði til frönsku höfuðborgarinnar.
Fulltrúar Rashford hittu menn hjá PSG í síðustu viku og ræddu hugsanleg skipti.
Nú hefur United hins vegar sagt nei og ólíklegt að eitthvað verði af skiptunum.
Rauðu djöflarnir telja sig í sterkri stöðu hvað málið varðar. Rashford á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum á Old Trafford. Þá hefur United möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.
Rashford verður 25 ára gamall í október. Hann er uppalinn hjá Manchester United.