Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var á dögunum dæmdur í fimm leikja agabann fyrir hegðun sína á leik KA gegn KR í síðustu viku og orð sem hann lét falla í garð Sveins Arnarssonar, fjórða dómara leiksins.
Hjá KA eru menn allt annað en sáttir með lengd bannsins.
Arnar kallaði Svein „fokking fávita“ í leiknum. Þá sagði Fótbolti.net frá því á dögunum að leiðir Arnars og Sveins hafi legið saman degi eftir leik þar sem Arnar hafi „veist að“ Sveini.
Ekki er vitað hvort atvikið daginn eftir leik hafi spilað inn í ákvörðun Aga- og úrskurðanefndar KSÍ um að setja Arnar í fimm leikja bann.
„Virðist sem KSÍ byggi bannið á atviki sem gerðist deginum eftir að leik lauk. Galið fordæmi svo vægt sé tekið til orða,“ skrifaði Runólfur Trausti Þórhallsson, blaðamaður Vísis, á Twitter á dögunum.
Helgi Seljan á Stundinni svaraði þessu. „Af hverju er galið fordæmi að láta manninn axla ábyrgð á því að haga sér eins og hortugur, frekur smákrakki, við dómara, fyrst í leik og svo með að veitast að honum degi seinna á svæði félagsins sem hann starfar fyrir sem glorified leikfimikennari?“
Af hverju er galið fordæmi að láta manninn axla ábyrgð á því að haga sér eins og hortugur, frekur smákrakki, við dómara, fyrst í leik og svo með að veitast að honum degi seinna á svæði félagsins sem hann starfar fyrir sem glorified leikfimikennari?
— Helgi Seljan (@helgiseljan) August 10, 2022
Málið var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun í gær. Þar gagnrýndir fyrrum knattspyrnumaðurinn Þórhallur Dan Þórhallsson Helga harkalega fyrir vanvirðingu í garð Arnars.
„Ég sá þessa færslu hjá Helga Seljan. Hversu dapurt er það að svona virtur fréttamaður eins og Helgi Seljan sé að gera lítið úr starfi Arnars með því að kalla hann „glorified“ leikfimikennara?“ Sagði Þórhallur.
„Þetta er svo dapurt. Hann má hafa þá skoðun sem hann vill á málinu, en að gera lítið úr starfinu hjá Adda, starf knattspyrnuþjálfara er svo ótrúlega viðamikið. Þú ert með 24-30 leikmenn plús sem þú ert að hugsa um, hugsa um æfingarnar, andstæðinga, skoða þrjá til fjóra leiki aftur í tímann og greina þá. Það er í besta falli hlægilegt að koma svona fram. Og af svona manni eins og Helga Seljan, sem er virtur blaðamaður á Íslandi.“
„Ég hafði álit á Helga Seljan en það minnkaði stórkostlega þegar ég las þetta.“