Adrien Rabiot veltir nú fyrir sér framtíð sinni en Juventus hefur samþykkt tilboð frá Manchester United í hann.
United ræðir um kaup og kjör við móðir Rabiot sem er umboðsmaður hans.
Samvkæmt Gazzetta á Ítalíu er Rabiot að fara fram á verulega launahækkun til að fara til United en hann er í dag næst launahæsti leikmaður í Seriu A.
Samkvæmt fréttum á Ítalíu er Rabiot að spá í að vera eitt ár í viðbót hjá Juventus og fara frítt næsta sumar.
United er að leita að miðjumanni en félaginu hefur ekki tekist að krækja í Frenkie de Jong og vonast til að fá Rabiot.