fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Yfirlýsing frá Man Utd fer gegn öllum fréttum síðustu daga

Helgi Sigurðsson
Fimmtudaginn 7. júlí 2022 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United segir að Cristiano Ronaldo sé ekki til sölu, þrátt fyrir fréttir síðustu daga.

Framtíð Ronaldo er í lausu lofti og héldu enskir miðlar því fram í morgun að Man Utd væri búið að sætta sig við að Ronaldo væri á förum.

Yfirlýsing félagsins hljóðar hins vegar öðruvísi. „Öfugt við það sem er haldið fram í fjölmiðlum hefur staða okkar ekki breyst gagnvart Ronaldo. Hann á ár eftir af samningi sínum og er ekki til sölu,“ segir í henni.

Ronaldo sneri aftur til Man Utd í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf félagið fyrir Real Madrid.

Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en liðið olli hins vegar vonbrigðum og hafnaði í sjötta sæti. Það þýðir að Man Utd mun leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð, eitthvað sem Ronaldo getur ekki hugsað sér en hann ætlar að spila með liði í Meistaradeild Evrópu.

Ronaldo hefur ekki mætt til æfinga eftir sumarfrí og er ólíklegt að hann fari með Man Utd í æfingaferð. Haldið verður utan á föstudag.

Ronaldo hefur hvað mest verið orðaður við Chelsea. Þá hafa Bayern Munchen og Napoli einnig verið nefnd til sögunnar. Öll félögin leika í Meistaradeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar
433Sport
Í gær

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni
433Sport
Í gær

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur