Samkvæmt CBS Sports mun Arsenal taka þátt í kapphlaupi um Serge Gnabry, vængmann Bayern Munchen, verði það til staðar.
Gnabry lék með Arsenal frá 2011 til 2016 en tókst ekki að vinna sér inn sæti í liðinu. Hann fór til Werder Bremen og þaðan til Bayern ári síðar, þar sem hann hefur slegið í gegn.
Nú er hinn 26 ára gamli Gnabry hins vegar sagður hugsa sér til hreyfings. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern og því í sterkri stöðu upp á að koma sér burt.
Þjóðverjinn hefur undanfarið verið orðaður við Manchester-liðin, City og United. Arsenal er ekki til í að sjá sinn fyrrum leikmann fara þangað og munu því fylgjast grannt með stöðu mála.
Gnabry skoraði 14 mörk í 34 leikjum í Bundesliga á síðustu leiktíð. Þá skoraði hann þrjú mörk í átta leikjum í Meistaradeild Evrópu. Ljóst er að hann yrði mikill fengur fyrir það félag sem fær hann.