Lokakeppni Evrópumótsins hefst í dag. Þá taka gestgjafar Englendinga á móti Austurríki í A-riðli mótsins. Leikið verður á Old Trafford.
Alls taka sextán lönd þátt í mótinu og er þeim skipt í fjóra fjögurra liða riðla. Tvö efstu lið hvers riðils komast svo í 8-liða úrslit.
Englendingar eru mun sigurstranglegri en Austurríki í dag, liðið er talið með þeim líklegri til að standa uppi sem sigurvegari á mótinu.
Ísland hefur svo leik á sunnudag þegar stelpurnar okkar mæta Belgum. Auk Belga eru Ítalir og Frakkar í riðli með okkur Íslendingum. Tvö síðastnefndu liðin eru talin mun líklegri en Ísland og Belgía til að fara upp úr riðlinum og því er ljóst að fyrsti leikurinn er virkilega mikilvægur fyrir íslenska liðið.
Leikur Englands og Austurríkis hefst klukkan 19 í kvöld á Old Trafford. Verður hann í beinni útsendingu á RÚV 2.