Mauricio Pochettino var í gær rekinn frá liði Paris Saint-Germain eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins eitt og hálft ár.
Pochettino var ráðinn til PSG í fyrra en gengi liðsins var ekki heillandi undir hans stjórn og er Christophe Galtier tekinn við.
Pochettino er alls ekki sár eftir brottreksturinn og þakkaði fyrir sig með tilkynningu sem hann birti í gær.
,,Ég vil óska öllum hjá PSG góðs gengis í framtíðinni, eigendunum, stjórninni, leikmönnunum, starfsfólkinu og stuðningsmönnum,“ sagði Pochettino.
,,Til Nasser [Al-Khalaifi, forseta PSG] – ég vil þakka þér fyrir tækifærið að vera hluti af fjölskyldu PSG á ný. Við upplifðum sum frábær augnablik saman og unnum stóra sigra.“
,,Við enduðum tímabilið sem stoltir deildarmeistarar hjá félagi sem hefur þýtt mikið fyrir mig og mína fjölskyldu.“