Nú er hálfleikur í leik Malmo og Víkings í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Um fyrri leik liðanna er að ræða. Það má segja að dómari leiksins, Dumitru Muntean, hafi verið í aðalhlutverki.
Malmö leiðir 2-1 í leik þar sem Íslands- og bikarmeistararnir hafa svo sannarlega ekki verið verri aðilinn.
Martin Olson kom Malmö yfir á 16. mínútu með skoti sem fór af varnarmanni Víkings og í netið.
Kristall Máni Ingason jafnaði á 38. mínútu eftir frábæra sókn Víkings. Hann fagnaði með því að „sussa“ á stuðningsmenn Malmö og uppskar fyrir það sitt annað gula spjald og þar með rautt, stórfurðuleg ákvörðun Muntean.
Skömmu síðar kom Ola Toivonen Malmö yfir á nýjan leik.
Það má segja að íslenskir knattspyrnuunnendur séu bálreiðir á Twitter og lætur dómarann heyra það. Samantekt af því besta má sjá hér að neðan.
🫰🫰🫰 pic.twitter.com/etvsC6cEt9
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) July 5, 2022
Er þessi dómari með dómararéttindi?🤯 Sá er spjaldaglaður
— Kristín Ingimarsdóttir (@Kristinbingimar) July 5, 2022
Ég gæti ælt. #eurovikes
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) July 5, 2022
Kristall Mani, the best player on the pitch (Pablo a close second), is sent off for that celebration. No words.
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) July 5, 2022
Þessi dómari er kexruglaður
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) July 5, 2022
Hahahaha þið sem segið að fótbolti sé clean. Sönnunargagn A. Dómgæslan í Malmö #fotboltinet
— Bergmann Guðmundsson (@BergmannGudm) July 5, 2022
Eru menn hissa á dómgæslunni í Malmö? Þeir fá alltaf allt með sér…bæði í Sverige og gegn minni liðum í Evrópu
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) July 5, 2022
Hey @ChampionsLeague you have to take a look at the ref that you put on the 🇸🇪Malmö-Víkingur🇮🇸 game. He is embarrassing himself and it is embarrassing that you put him on a game in the champions league if this is the quality he has.
What a joke…— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) July 5, 2022
HVAÐA FÁBJÁNI ER Á FLAUTUNNI ÞARNA???? HA????
— Rikki G (@RikkiGje) July 5, 2022
Fixed
— Bjarki Freyr (@Bjarkifreyr97) July 5, 2022
Vel gert að eyðileggja einvígið dómaraógeð!
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) July 5, 2022
Dómarinn gaf seinna gula á þetta. Gjörsamlega galið. Mögulega getur dómarinn réttlætt þetta eftir einhverjum reglum en besta regla dómarans er alltaf heilbrigð skynsemi. Eyðilagði leikinn. pic.twitter.com/cHYPvFB9PH
— Jóhann Már Helgason (@Joimar) July 5, 2022
Þetta er versta dómgæsla sem ég hef orðið vitni af á ævinni🤨
— Hermann Árnason (@HermannArnason) July 5, 2022